|
|
 |
|
|
 |
| BÓKAÞJÓÐ STYÐUR RÚSTABJÖRGUNARSVEITINA |
22. janúar 2010 |
|
Fjögur íslensk bókaforlög hafa í samvinnu við Eymundsson ákveðið að gefa sjö ný stórvirki á sviði útgáfu að söluverðmæti um 4,5 milljónir króna til stuðnings rústabjörgunarsveit Landsbjargar við að endurnýja búnað sem sveitin skildi eftir á Haítí til aðstoðar hjálparsveitum á svæðinu. Stórvirkin verða seld í Eymundsson um allt land nú um helgina og er þetta upphaf átaks sem nefnist „Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“. Allir fjármunir sem koma inn fyrir sölu á þessum bókum renna óskertir til að endurnýja búnað sveitarinnar. Jafnframt hefur Eymundsson ákveðið að bæta 10% af allri sölu íslenskra barnabóka í verslunum sínum þessa daga við söfnunarupphæðina. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar. Íslenska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að greiða fimm milljónir fyrir þann búnað sem rústabjörgunarsveit Landsbjargar skildi eftir en markmiðið er að bókaþjóðin bjargi því sem upp á vantar. Félagar í rústabjörgunarsveit Landsbjargar hleypa átakinu af stað í Eymundsson Austurstræti kl. 14 á morgun, föstudaginn 22. janúar. Átakið stendur til mánudagins 25. janúar.
Stórvirkin sem um ræðir eru Sagan og Ísland í aldanna rás 1700–1799 frá Forlaginu, Ásgerður Búadóttir – Veftir og Elías B. Halldórsson frá Uppheimum, Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jöklar á Íslandi frá Opnu og Svavar Guðnason frá Bjarti & Veröld en tvö síðast nefndu verkin eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem veitt verða nú í febrúar.
Félag íslenskra bókaútgefenda hyggst standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi á næstu vikum til stuðnings björgunarstarfi á Haítí. Félagið hefur enn fremur vakið athygli Evrópusamtaka bókaútgefenda á þessu framtaki og hvatt systurfélög sín til að leggja þessu brýna málefni lið.
Aukin þekking og bætt menntun verður lykilatriði í framtíðaruppbyggingu á hörmungarsvæðunum á Haítí. Þar munu bækur gegna veigamiklu hlutverki. Íslenskar bækur gagnast vitaskuld ekki beint í þessu skyni, en með því að breyta þeim í fjármuni með hjálp íslenskra bókaunnenda öðlast þær vængi og leggja þurfandi lið. Það er von þeirra sem að verkefninu standa að bókaþjóðin taki framtakinu vel – eignist kjörgripi en leggi jafnframt sitt af mörkum við uppbyggingu á hamfarasvæðunum.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Vitavörðurinn | |
|  Aldrei framar frjáls | |
|  NEMESIS | |
|  Hafmeyjan | |
|  Hvarfið | |
|  Land draumanna | |
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|